80 % barna í skólahóp á leikskólanum Heiðarseli geta lesið
Á leikskólanum Heiðarseli í Reykjanesbæ hefur verið lögð sérstök áhersla á læsi og lestur. Það hefur skilað eftirtektarverðum árangri, þar sem almenna reglan er að við útskrift úr leikskólanum geti meirihluti nemenda í skólahóp lesið einfaldan texta.
Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar þakkar þennan árangur markvissri vinnu kennara sem unnin er í góðri samvinnu við fjölskyldur barnanna. Gylfi Jón segir að leikskólar í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði starfi eftir sameiginlegri framtíðarsýn þar sem lögð sé sérstök áhersla á læsi og stærðfræði frá fyrsta degi skólagöngu. Það skili sér í því að nemendur komi nú betur undirbúnir undir grunnskólagöngu en áður, og árangur nemenda á Heiðarseli sé gott dæmi um það.