8.500 króna líkamsræktarstyrkur í Grindavík
Bæjarstjóri Grindavíkur hefur lagt fram tillögu að styrk til íþróttafélaga í Grindavík á móti kostnaði við líkamsrækt í heilsurækt Actic ehf. í sundmiðstöð Grindavíkur.
Actic býðst til að selja íþróttafélögum árskortið á 19.900 kr.
Bæjarráð Grindavíkur samþykkir að Grindavíkurbær veiti styrk sem samsvarar því gjaldi sem iðkendur greiða í sund, þ.e. 8.500 kr.
Þá verður árgjaldið á hvern íþróttamann 11.400. Styrkurinn standi leikmönnum meistaraflokka til boða, auk afreksfólks í einstaklingsíþróttunum.