HSS
HSS

Fréttir

750 ungmenni ráðin til sumarstarfa hjá Reykjanesbæ
Mánudagur 31. maí 2010 kl. 16:45

750 ungmenni ráðin til sumarstarfa hjá Reykjanesbæ

Rúmlega sjö hundruð ungmenni munu hefja sumarstörf hjá Reykjanesbæ í þessari og næstu viku.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Vinnuskólinn hefur störf um miðja næstu viku og þar hafa 500 ungmenni sótt um störf sem er svipaður fjöldi og í fyrra.

Bæjarfélagið ákvað að bjóða ungu skólafólki á aldrinum 17-20 ára starf við ýmis verkefni í sumar og fengu allir vinnu sem sóttu um eða 200 manns.


Þessu til viðbótar hafa verið ráðnir flokksstjórar við Vinnuskólann og sumarátak auk þess sem nokkrar stofnanir bæjarins ráða til sín fólk í sumarafleysingar.