Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

75 daga fangelsi fyrir kannabisræktun
Fimmtudagur 19. janúar 2017 kl. 06:00

75 daga fangelsi fyrir kannabisræktun

Karlmaður var af Héraðsdómi Reykjaness í vikunni dæmdur til 75 daga fangelsisvistar fyrir vörslu fíkniefna á heimili sínu í Reykjanesbæ. Fullnustu refsingarinnar verður frestað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði skilorð.

Í janúar í fyrra fundust meðal annars sjö kannabisplöntur á heimili hans. Hinn ákræði játaði brot sitt. Plönturnar voru gerðar upptækar og honum gert að greiða 86.815 krónur í sakarkostnað.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024