73 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í mars
Á Suðurnesjum var 73 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í mars. Þar af voru 38 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um eign í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 2.788 milljónir króna og meðalupphæð á samning 38,2 milljónir króna.
Af þessum 73 voru 52 samningar um eignir í Reykjanesbæ. Þar af voru 35 samningar um eignir í fjölbýli, 14 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.879 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,1 milljónir króna.