700 umsóknir um 80 störf hjá Iceland Express handling
Gríðarleg ásókn er í störf hjá Iceland Express Handling, nýju þjónustufyrirtæki Iceland Express. Þegar eru komnar rösklega 700 umsóknir um þau tæplega 80 störf, sem eru í boði. Umsóknarfrestur rennur út á morgun.
Iceland Express stofnaði Iceland Express Handling fyrir nokkru til að annast flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli, en áður hafði félagið keypt þessa þjónustu af öðrum.
Forráðamenn Iceland Express höfðu lengi haft hug á að sjá um þjónustu við eigin vélar, enda hefur félagið stækkað ört. Tilgangurinn er að bæta þjónustu við farþega í takt við markaðssókn og bjartari tíma.
Iceland Express flýgur til 23ja áfangastaða í sumar, þar af fjögurra í Ameríku. Félagið hefur ráðið til sín fjölda nýrra starfsmanna undanfarna mánuði.