Bygg
Bygg

Fréttir

700 fjölskyldur þiggja mataraðstoð
Miðvikudagur 9. nóvember 2011 kl. 11:48

700 fjölskyldur þiggja mataraðstoð

Nú eru tæplega 700 fjölskyldur í Reykjanesbæ sem þiggja mataraðstoð Fjölskylduhjálpar Íslands en Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar segir í samtali við mbl.is að fjölskyldurnar gætu orðið 1000 á næstunni.

Fjölskylduhjálp Íslands skráði allar heimsóknir þeirra sem fengu mataraðstoð á tímabilinu 1. júní 2010 til 31. maí 2011. En um 24 þúsund matargjöfum var úthlutað til ríflega 3500 einstaklinga og fjölskyldna þeirra á tímabilinu. Um 2500 börn eru á heimilum sem þiggja mataraðstoðina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn