70% fleiri farþegar í Flugstöðinni í janúar
-Fjöldi farþega ríflega tvöfaldast í mánuðinum frá 2015
Í liðnum janúarmánuði fóru 70 prósent fleiri farþegar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar en á sama tíma í fyrra. Samanborið við janúar 2015 þá hefur fjöldi farþega ríflega tvöfaldast. Enginn annar flugvöllur, með meira en fimm milljónir farþega ári, státar af álíka vexti og sá íslenski í byrjun árs. Næst mesti vöxturinn var á Boryspil flugvelli í Kiev en þar fjölgaði farþegum um 36,3 prósent. Túristi.is greinir frá.
Það sem af er ári hafa Íslendingar verið meira á ferðinni en á sama tíma í fyrra og það á líka við um fleiri þjóðir því almennt jókst farþegafjöldinn á evrópskum flugvöllum um 8.9 prósent samkvæmt tölum ACI, sambandi evrópskra flugvalla.