70-80 lítrar af glussaolíu láku niður í íbúðarbyggð
Á milli 70 og 80 lítrar af glussaolíu láku úr bifreið sem var við sorphreinsunarstörf á Hringbraut í Reykjanesbæ í morgunsárið. Slökkvilið Suðurnesja var kallað á vettvang og hófust hreinsistörf klukkan rúmlega 7 í morgun. Þegar ljósmyndara Víkurfrétta bar að garði klukkan rúmlega 9 þá var verið að ljúka hreinsun. Að sögn slökkvimanna á vettvangi gekk hreinsunin vel og enginn skaði hlaust af í nágrenninu.
Myndir af vettvangi í morgun. EJS.