Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

66% stjórnenda hjá Reykjanesbæ eru konur og 34% karlar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 7. desember 2020 kl. 10:10

66% stjórnenda hjá Reykjanesbæ eru konur og 34% karlar

Reykjanesbær fékk viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Reykjanesbær fékk viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar nýlega en þau eru veitt fyrirtækjum og opinberum stofnunum sem hafa unnið á framúrskarandi hátt að markmiðum Jafnvægisvogar í sínum rekstri.

Reykjanesbær er með virka jafnréttisstefnu sem er stöðugt í endurskoðun. Bæjarfélagið hefur hlotið jafnlaunavottun og leggur mikla áherslu á fjölbreytileika í víðum skilningi í sínu stjórnendateymi og líka innan starfsmannahópsins. Í dag eru um 66% stjórnenda hjá Reykjanesbæ konur og um 34% karlar sem endurspeglar einnig starfsmannahópinn. Þá má nefna að um 65% starfsfólks bæjarins starfar innan Fræðslusviðs en ein af helstu áskorunum allra sveitarfélaga er að fjölga körlum innan kennarastéttarinnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Tilgangur Jafnvægisvogarinnar er að auka jafnvægi kynjanna í efstu stjórnunarstöðum í íslensku atvinnulífi og efla íslenskt viðskiptalíf til að vera fyrirmynd jafnréttis á alþjóðavísu. Ísland hefur staðið sig vel þegar kemur að kynjajafnrétti samanborið við önnur lönd heimsins en betur má ef duga skal. Konur eru um 67% útskrifaðra háskólanema en einungis 11% forstjóra. Tölur á íslenskum vinnumarkaði sýna að eftir því sem fyrirtækin eru stærri fækkar konum í stjórnunarstöðum.