64 hegningarlagabrot framin í maí
Alls voru framin 64 hegningarlagabrot í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum í síðasta mánuði. Það er nokkur fækkun brota samanborið við maí 2009 þegar þau voru 82 talsins.
Umferðarlagabrotum fækkaði einni á milli ára í maí, voru 244 nú samanborið við 341 brot í maí 2009. Fíkniefnamálum fjölgaði hins vegar úr sex í níu.
Sé litið á landið í heild hefur fjöldi hegningarlagabrota í maí aldrei verið meiri síðastliðin sex ár. Frá árinu 2007 hefur þeim fjölgað jafnt og þétt og voru þau 1.333 í maí síðastliðnum. Þetta kemur fram í samantekt frá Ríkislögreglustjóra.