Bygg
Bygg

Fréttir

60 milljón kr. Porsche á Keflavíkurflugvelli
Laugardagur 17. apríl 2004 kl. 18:46

60 milljón kr. Porsche á Keflavíkurflugvelli

Á næstu dögum verður sportbíllinn Porsche Carrera GT frumsýndur á Íslandi en bíllinn kom til landsins nú síðdegis með flugvél Bláfugls. Bíllinn er metinn á um 60 milljónir króna.

 

Porsche Carrera GT
Porsche hefur framleitt sportbíla síðan 1948. Allir hafa þeir verið hannaðir með það að markmiði að eigendur þeirra gætu notað þá í akstursíþróttum, ekki síst í kappaksturskeppnum. Sportbílar Porsche byggjast á eiginleikum sem þróaðir hafa verið í kappakstursbílum á borð við 718 RS Spyder, 904, 910/8 Bergspyder, 908 Spyder og 917. Sigur Porsche sportbíla í heimsþekktum kappaksturskeppnum svo sem Milli Miglia, Targa Florio, Panmericana og Le Mans segir sína sögu en til að vinna í þessum keppnum þarf sportbíll jafnframt að hafa eiginleika kappakstursbíls.

 Í kjölfar þeirra frægu kappakstursbíla 956 og 962 kom hinn háþróaði Porsche 959 og skömmu síðar GT1 – tvöfaldur sigurvegari í Le Mans (1998). Hinn nýi Carrera GT er byggður á  þessum grunni og hefur enginn sportbíll áður haft jafn mikið af eiginleikum kappakstursbíls.

Sportbíll með yfirburði
Carrera GT er sportbíll og þess vegna eins léttur og kraftmikill og hann getur verið. Með Carrera GT hefur sportbíll öðlast meira af eiginleikum kappakstursbíls en áður eru dæmi um. Í útliti sker bíllinn sig úr með mjúkar, ávalar línur, án þaks, með sérkennileg loftinntök og vélina sýnilega – hönnun sem er áberandi ný af nálinni.

Forsenda hönnunarinnar er ekki einungis líflegir aksturseiginleikar heldur einnig og jafnframt að straumfræðilegir eiginleikar sem lágmarka vindviðnám og hámarka stöðugleika í akstri. Innbyggð vindskeið að aftan rís sjálfkrafa við 120 km/klst. og  þrýstir afturhlutanum niður til að tryggja veggrip og stöðugleika.

Eigandi Carrera GT getur notað hann sem sportbíl til allra sinna ferða auk þátttöku í akstursíþróttum – hann þarf ekki 2 bíla þess vegna.

Einstakir aksturseiginleikar - styrkur
Bygging bílsins, sem er með vélina í miðjunni, er þannig að þyngdarmiðjan er mitt á milli fram- og afturhjóla. Bensíngeymirinn er t.d. aftan við sætisbökin og fyrir framan vélina – hönnun sem er þekkt þegar kappakstursbíll á í hlut og gerir m.a. að verkum að álagsdreifing á hjólin er sú sama og jöfn við mismunandi akstursálag sem er eitt af grunnatriðum góðra aksturseiginleika.

 Þungamiðja bílsins er mjög neðarlega vegna þess hve hann er lágur og vél- og drifbúnaður neðarlega.  Fyrir bragðið getur Carrera GT farið mjög hratt í beygjum.

Aðalefniviður í yfirbyggingunni er koltrefjaefni. Það hefur alla eftirsóknarverðustu eiginleika stáls en auk þess þyngd í lágmarki og hámarksstyrk. Með því er einnig myndað frumlegt ,,öryggisbúr”.

10 sílindra V-vél – Keramik kúpling – 6 gíra gírkassi aftan við drif

Nýja V-10 vélin er þróuð af keppnisdeild Porsche (Porsche Motorsport Department). Slagrýmið er 5,7 lítrar. Hámarksafl 612hö og hámarkstog 600 Nm. Snúningshraðasviðið er upp að 8400 sn/mín. Hvert brunahólf hefur 4 ventla og sjálfvirkur búnaður stýrir loftflæði soggreinarinnar til að tryggja hámarksöndun vélarinnar. Vélarblokkin er úr léttmálmsblöndu. Sveifarásinn situr lægra í þessari vél en í venjulegum bílvélum. Stimpilstangir eru úr títaníum en þær  gerast ekki sterkari. 

Til að miðla þessu gríðarlega afli hnökralaust til hjólanna er sérstaklega hönnuð kúpling úr keramik “Porsche Ceramic Composite Clutch” (PCCC), þessi nýja gerð  kúplingar var forsenda þess að  tækni mönnum Porsche tækist að hafa þyngdapunktinn svona neðarlega, en þvermál hennar er aðeins 169mm.

6 gíra beinskiptur keppnisgírkassinn staðsettur aftast í bílnum, í raun fyrir aftan og ofan mismunadirfð sjálft.

Undirvagn ….

Eins og við er að búast er undirvagninn í Carrera GT sams konar og í kappakstursbílum. Hjólfestingar að aftan og framan eru klafar uppi og niðri – gríðarlega sterkt en létt burðarvirki sem tryggir aksturseiginleikana og öryggið – sem er í sérflokki eins og í öðrum Porsche.

 Á meðal þess sem er sérstakt við undirvagninn í Carrera GT er að hann má stilla á ýmsa vegu, þ.e. setja upp fyrir mismunandi keppni, mismunandi braut o.s.frv. Einnig má nefna að afturhjólastellinu er fest á drifhúsið. Með því móti verður fjaðrandi þungi hjólanna í lágmarki en það eykur veggripið.

Bremsurnar eru kapítuli út af fyrir sig; öryggisbúnaður í sérflokki. Diskarnir eru úr sérhæfðu keramísku efni (PCCB) sem þolir gríðarlegan hita og núning eins og sérhannaðir bremsuklossarnir. Keramísku diskarnir eru formaðir eins og stáldiskar með kælirás en eru 50% léttari og  minnka þannig fjaðrandi þunga hjólanna enn frekar. Að framan eru bremsudælur með 8 stimpla en afturdælurnar eru með 4 stimpla.

Eins og að líkum lætur eru felgurnar á Carrera GT sér á parti. Þær eru fargsteyptar úr magnesíumblöndu, fisléttar og níðsterkar. Til að ná sem bestum aksturseiginleikum eru framfelgurnar með 19” þvermáli en afturfelgurnar með 20”. Þær eru þannig formaðar að keramísku bremsudiskarnir með 380 mm þvermáli rýmast innan í þeim.

 Innanstokks

,,Akstursvél” er hugtak sem ef til vill mætti nota til að lýsa Carrera GT.  Stjórnandinn hefur öll tæki innan seilingar; miðjustokkurinn sameinast mælaborðinu á þann hátt að gírstöngin er í hæð við stýrishjólið. Stólarnir og bólstrun þeirra eru sérstaklega hannaðir fyrir bílinn og klæddir ljósbrúnu mjúku skinni. Stólarnir veita góðan stuðning til að draga úr áhrifum flóttaafls aftur og fram á við og til hliðanna og á meðal nýjunga er stuðningur við læri og hné á hliðum stólanna sem jafnframt er auðvelt að fella fram.

TÆKNILÝSING

Vél:
V10 álvél með 68° samhalla.
5,7 lítra slagrými
Afl: 612 hö.
Hámarkssnúningshraði: 8400 sn/mín.
Tog: 600 Nm (hám.)

Drifbúnaður:
Afturhjóladrif
6 gíra beinskiptur kassi

 Undirvagn:
Hjólfestingar: Efri og neðri klafi við hvert hjól.
Stillanlegar stífur á afturöxli, stillanleg fjöðrun sem fest er á drifhús.

Stýrisgangur:
Tannstangarstýri með vökvaaðstoð.

Bremsur:
Að framan 8 stimpla dælur heilsteyptar.
Að aftan 4ra stimpla dælur heilsteyptar
Keramískir bremsudiskar (PCCB) 380 mm að þvermáli.
Fjögra rása ABS-kerfi.

Hjól: 
Magnesíum felgur með miðjulæsingu.
Framdekk: 265/30 R19
afturdekk: 335/30 R20

Eigin þyngd: 1380 kg.

 Geta:
Hámarkshraði: Meiri en 330 km/klst.
3,8 sek. frá 0 í 100 km/klst.
9,9 sek. frá 0 í 200 km/klst.

Mál:
Lengd: 4613 mm
Breidd: 1921 mm
Hæð: 1166mm
Hjólhaf: 2730 mm
Bensíngeymir: 92 lítrar

 

VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn