Miðvikudagur 9. janúar 2002 kl. 13:25
585 milljónir til niðurgreiðslu langtímalána

Fyrsti fundur bæjarstjórnar á árinu var haldinn 8. janúar og var aðaldagskrárliðurinn seinni umræða um fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2002. Fundurinn var fjörugur og snérust ræður og umræður bæjarfulltrúanna fyrst og fremst um útreikninga og niðurstöður á því hvað raunverulega hefði verið greitt niður af skuldum bæjarins á síðasta ári. Jóhann Geirdal, Samfylkingunni, fór hörðum orðum um fjármálastjórn bæjarins og sagðist hafa efasemdir um að þar væru færir menn á ferð. Hann vitnaði í fyrirspurn sína til fjármálastjóra bæjarins, þar sem spurt var hve mikið af skuldum bærinn hefði í raun greitt niður á síðasta ári. Svarið sem hann fékk var að 265 milljónir hefðu verið borgaðar niður af lánunum. Í svarinu frá fjármálastjóranum vantaði þær upplýsingar að bæjarsjóður hefði tekið 235 milljón króna lán til að greiða niður eldri lán og því er raunveruleg niðurgreiðsla lána aðeins 30 milljónir. Ellert Eiríksson, Sjálfstæðisflokki, bað bæjarfulltrúa afsökunnar á svari fjármálastjórans til Jóhanns Geirdal og minnihlutans og sagði að sennilega væri um misskilning eða mistök að ræða.
Fjárhagsáætlun ársins 2002 var samþykkt með 7 atkvæðum meirihlutans en minnihlutinn sat hjá. Í bókun meirihlutans segir að allar álagningaprósentur og krónugjöld séu óbreytt á milli ára, en gjaldskrá þjónustu hækki um 5% sem sé verulega lægri hækkun en í flestum öðrum sveitafélögum.
Á næsta ári og því síðasta verða skuldir sveitafélagsins greiddar niður um 615 milljónir, því gert er ráð fyrir niðurgreiðslu langtímalána um 585 milljónir á þessu ári og ekki gert ráð fyrir að ný lán verði tekin.