548 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur

Lögregluembættin á Keflavíkurflugvelli og í Keflavík hafa í samstarfi sinnt umferðargæslu á vegum í umdæminu og af þessum 548 ökumönnum hefur Vallarlögreglan kært 296 ökumenn fyrir hraðakstur og þar af 273 á Reykjanesbrautinni.
Þrátt fyrir daglegar fréttir af ökumönnum sem lögreglan kærir fyrir þessar sakir, virðist margir ekki láta sér segjast, jafnvel þó ökumenn eigi að vita að lögreglan er daglega inn á Reykjanesbraut við hraðamælingar, sem og á öðrum vegum í umdæminu.
Alls hafa 60 ökumenn verið kærðir á þessu tímabili fyrir að nota ekki bílbelti og 50 hafa verið kærðir fyrir farsímanotkun á akstri, án þess að nota handfrjálsan búnað eins og lög gera ráð fyrir.