Fréttir

50% aukning á milli ára
Miðvikudagur 1. október 2014 kl. 11:08

50% aukning á milli ára

Enn fjölgar farþegum í Vogastrætó

Alls ferðuðust 588 manns með Vogastrætó í september, en strætóinn ekur milli mislægu gatnamótanna við Reykjanesbraut og að Gamla Pósthússins í Vogum. Stöðug fjölgun farþega hefur verið allt frá upphafi, og því ljóst að Vogabúar kunna vel að meta þessa þjónustu. Heildarfarþegafjöldinn fyrstu níu mánuði ársins er rúmlega 4 þúsund, sem eru fleiri farþegar en allt árið 2013. Miðað við sömu mánuði ársins 2013 er aukningin árið 2014 milli ára 49%. Starfsemi Vogastrætó hófst sem tilraunaverkefni árið 2011 og hefur nú öðlast fastan sess í starfsemi sveitarfélagsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024