50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar undirbúið
Grindavíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli 10. apríl 2024 og er þegar farið að leggja grunn að hátíðarhöldum vegna þessara tímamóta.
Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd sem í eiga sæti fimm fulltrúar. Fulltrúarnir skulu endurspegla fjölbreytni samfélagsins í Grindavík. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs hefur verið falið að vinna erindisbréf fyrir nefndina.