HSS
HSS

Fréttir

50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar skipuð
Föstudagur 14. apríl 2023 kl. 06:15

50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar skipuð

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt samhljóða erindisbréf og tillögu bæjarráðs um skipun 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða að nefndin skipi sér sjálf formann.

Tillaga bæjarráðs að skipun nefndarinnar er eftirfarandi. Aðalmenn eru Aðalgeir Johansen, Ásrún Helga Kristinsdóttir, Emilía Ósk Jóhannesdóttir, Kristín E. Pálsdóttir  og Lára Lind Jakobsdóttir. Varamenn í nefndinni eru Tómas Breki Bjarnason og Valdís Inga Kristinsdóttir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Við 20 ára tímamótin var t.a.m. sundlaugin vígð, í apríl 1994. Þá var mikið húllumhæ þegar 40 ár voru liðin og  fóru þá  fram einhverjir stærstu og veglegustu tónleikar sem haldnir hafa verið í íþróttahúsinu. Þá komu fram Fjallabræður ásamt bæði lúðrasveitum frá bæði Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn.