Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

457 hafa kosið utankjörfundar í Suðurkjördæmi
Föstudagur 3. nóvember 2006 kl. 12:30

457 hafa kosið utankjörfundar í Suðurkjördæmi

Á hádegi í dag voru 457 búnir að kjósa utankjörfundar í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem haldið verður laugardaginn 4. nóvember. Kosið hefur verið utankjörfundar á skrifstofu flokksins í Reykjavík, í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Hornafirði og í Vestamannaeyjum.

Áframhald verður á utankjörfundaratkvæðagreiðslu í kvöld föstudag 3. nóv. í Reykjanesbæ, Selfossi, Vestmannaeyjum og Höfn kl. 18-20 á eftirtöldum stöðum; Reykjanesbær, skrifstofu Samfylkingarinnar að Iðavöllum 3 Selfoss, Selið, Engjavegi 44 Hornafjörður, í húsnæði Vökuls stéttarfélags Víkurbraut 4 Vestmannaeyjar, á skrifstofu Starfsmannafélags Vestmannaeyja Hilmisgötu 13.

Auk þess fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram á skrifstofu Samfylkingarinnar v/Hallveigarstíg í Reykjavík í dag kl. 10:00-17:00 og á kjördag kl. 12:00-16:00.

Á kjördag 4. nóvember býðst kjósendum að kjósa utankjörfundar á einhverjum af tuttugu kjörstöðum í í Suðurkjördæmi ef þeir ná ekki að kjósa í sinni heimabyggð, að því er segir í tilkynningu.

 

Mynd: Frá kosningum. Tengist ekki fréttinni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024