Fréttir

45 milljónir úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja
Fimmtudagur 18. júní 2015 kl. 10:13

45 milljónir úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja úthlutaði á þriðjudag í fyrsta sinn styrkjum til 35 verkefna á Suðurnesjum fyrir samtals 45 milljónir króna.

Sjóðurinn er byggður á samningi um Sóknaráætlun Suðurnesja fyrir árin 2015 – 2019, sem Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa gert með sér og tekur við af Menningarsamningi Suðurnesja og Vaxtarsamningi Suðurnesja. Sjóðurinn hefur það markmið að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun á Suðurnesjum, með því að treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni svæðisins. Sjóðurinn styrkir menningar- atvinnu- og nýsköpunarverkefni, og önnur verkefni sem falla að Sóknaráætlun Suðurnesja. Sóknaráætlun Suðurnesja á að tryggja einfaldari samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra fjármuna.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá markmiðum og áherslum sem fram koma í úthlutunarreglum sjóðsins.

Alls var sótt um fyrir 99 verkefni til sjóðsins að þessu sinni og hljóðuðu styrkbeiðnir upp á rúmlega 220 milljónir. Úthlutunarnefnd samþykkti að úthluta kr. 45.150.000 til 35 verkefna. Verkefnin skiptast í þrjá flokka. Í flokknum menning og listir hlutu 16 verkefni styrk, 11 verkefni í flokknum nýsköpun og þróunarverkefni og í flokknum stofnstyrkir hlutu 8 verkefni styrk.



Styrkþegar 2015

Norrænir kvikmyndadagar á Suðurnesjum – Umsækjand: Norræna félagið í Garði, Erna M. Sveinbjarnardóttir, verkefnastjóri.
Verkefnið lýtur að samstarfi norrænu félaganna á Suðurnesjum um tveggja daga norræna kvikmyndasýningu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.200.000.

Upplýsingaskilti í Höfnum – Umsækjandi: Kirkjuvogskirkja, Árni Hinrik Hjartarson, verkefnastjóri.
Verkefnið lýtur að uppsetningu skiltis við Kirkjuvogskirkju, elstu kirkjuna á Suðurnesjum, vegna fjölda ferðamanna sem heimsækja staðinn. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 200.000.

Yfirfærsla tímaritsins Faxa á rafrænt form og inn á tímarit.is – Umsækjandi: Málfundafélagið Faxi, Kristinn Þór Jakobsson og Eysteinn Eyjólfsson, verkefnastjórar. Öll tölublöð Faxa til ársins 1980 hafa verið vistuð á vefnum timarit.is, félagið stefnir á að ljúka við verkefnið á árinu á 75 ára afmæli málfundafélagsins. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 250.000.

Rokkbúðir á Suðurnesjum fyrir 12 til 16 ára stelpur –  Umsækjandi: Stelpur rokka, Áslaug Einarsdóttir, verkefnastjóri.
Meðal þess sem stúlkurnar læra í rokkbúðunum er að spila á hljóðfæri, spila í hljómsveit og semja lag. Auk þess sem þær taka þátt í vinnusmiðjum.  Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 350.000.

Ljósmynda- og sögusýningin, Garðvegur 1, Arfur breyttrar verkmenningar – Umsækjandi: Þekkingarsetur Suðurnesja, Eydís Mary Jónsdóttir, verkefnastjóri.
Ljósmyndasýningin mun leitast við að sýna þá merkilegur sögu og þær miklu breytingar sem átt hafa sér stað í og við Garðveg 1, en húsið var bygt sem frystihús á árunum 1941-2. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 450.000.

Ómur frá liðnum tíma – Útvarpsþættir – Umsækjandi: Eiríkur Hermannsson sem jafnframt er verkefnastjóri. Umsækjandi hyggst ljúka gerð útvarpsþátta sem allir lúta að mannlífi og menningu á Suðurnesjum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500.000.

Garðskagaviti – Umsækjandi: Vitafélagið íslensk strandmenning, Sigurbjörg Árnadóttir, verkefnastjóri.
Gamli garðskagavitinn er í hópi þeirra vita sem fyrst voru friðlýstir.   Á garðskagavitann vantar ljósahúsið og lýtur verkefnið að því að bæta úr þeirri vöntun á sköpunarverk hans. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 600.000.

Kynning á bókmenntaarfinum – Umsækjandi: Almenningsbókasöfn á Suðurnesjum, Stefanía Gunnarsdóttir, verkefnastjóri. Haldin verða 6 bókmenntakvöld þar sem kynntar verða íslenskar bókmenntir bæði í formi upplestrar og fyrirlestrar um höfunda og efni í öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 700.000.

Yfirfærsla U-Matic spóla á starfrænt form – Umsækjandi: Byggðasafn Reykjanesbæjar, Sigrún Ásta Jónsdóttir, verkefnastjóri. Miklvægt er að hafa aðgengi að góðu og fjölbreyttu úrvali efnis sem varðar sögu svæðisins. Þessi tegund myndbandsspóla í safninu er orðin úrelt og því miklvægt að fara af stað með þetta verkefni. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 700.000.

Listasafn Reykjanesbæjar, tvær merkar sýningar árið 2015 – Umsækjandi: Listasafn Reykjanesbæjar, Valgerður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri. Markmiðið með þessum tveimur sýningum er að opna fyrsta flokks myndlistarsýningar sem vekja munu athygli langt út fyrir svæðið og því taka þátt í að auka straum gesta á Suðurnes. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Slökkviliðsminjasafn Íslands – Umsækjandi: Áhugamannasamtök um sögu slökkviliða á Íslandi, Ingvar Georgsson, verkefnastjóri.
Verkefnið er að viðhalda sögunni og varðveita hana ásamt þeim búnaði sem slökkviliðsmenn hafa notað í gegnum tíðina ásamt því að sinna forvarnarfræðuslu fyrir börn. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Sjólyst, fyrsti áfangi viðhalds innan dyra – Umsækjandi: Hollvinir Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst, Erna M. Sveinbjarnardóttir, verkefnastjóri. Húsið Sjólyst var byggt árið 1890 og er friðað. Markmiðið er að koma því í upprunalegt horf. Fjölbreytt starfsemi verður í húsinu í anda Unu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Með blik í auga – Umsækjandi: Guðbrandur Einarsson sem einnig er verkefnastjóri. Markmið tónleikanna er að bjóða íbúum Suðurnesja og öðrum landsmönnum upp á menningarviðburð sem stenst samanburð við það sem best gerist. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

List án landamæra – Umsækjandi: Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum, Guðlaug María Lewis, verkefnastjóri. Verkefnið er listahátíð sem haldin er einu sinni á ári með þátttöku fatlaðra og ófatlaðra listamanna, einstaklinga og hópa. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Skjaldbreið, hlaðan á Kálfatjörn – Umsækjandi: Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar, Helga Ragnarsdóttir, verkefnastjóri.
Endurbæturnar miða að því að hægt verði að nota Skjaldbreið til ýmissa samfélagslegra verka. Lögð er áhersla á  ferðaþjónustu allt árið  og einnig er lögð áherslaá  verklag og búskaparhætti forfeðra okkar. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Future Fictions vinnustofa – Umsækjandi: OH, Sigurjón Baldur Hafsteinsson, verkefnastjóri. Listrannsóknarverkefnið OH er alþjóðlegt samstarfsverkefni lista- og vísindamanna, menningar- og háskólastofnanna sem hefur aðsetur í gamla hliðinu á Ásbrú. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Veflausnin Akstursdagbók – Umsækjandi: Uppvís ehf, Helgi Þorkell Kristjánsson, verkefnastjóri
Meginmarkmiðið með verkefninu er að fyrirtæki og stofnanir eigi möguleika á að hætta notkun aksturdagbókar í því formi sem nú þekkist og innleiða þess í stað rafrænar færslur í vefformi. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Ávinningur Heilsu – Umsækjandi: Lúxdís ehf, Svandís Ósk Gestsdóttir, verkefnastjóri.
Verkefnið er að koma nýrri húðumhirðu línu á markaðinn undir nafninu Lúxdís skincare, samsettri úr hráefnum sem ekki hafa sést í íslenskum húðvörum áður. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.

Óperan Brúðkaup Fígarós – Umsækjandi: Norðuróp-óperufélag, Jóhann Smári Sævarsson, verkefnastjóri.
Verkefnið lýtur að því að auka við menningarflóruna á svæðinu og skapa verkefni fyrir þá listamenn sem hér búa, auk þess að efla þjálfun ungra íslenskra söngvara í óperusöng. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.300.000.

Göngu- og útivistarkort fyrir Reykjanesskaga – Umsækjandi: Reykjanes jarðvangur, Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri.
Reykjanesskaginn er vinsælt svæði til útivistar og gönguferða. Nauðsynlegt er að koma til móts við þann fjölmenna hóp fólks sem nýtir sér merktar og ómerktar gönguleiðir til útivistar og atvinnusköpunar. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.500.000.

Kötlumót í Reykjanesbæ – Umsækjandi: Karlakór Keflavíkur, Guðjón Þ. Kristjánsson, verkefnastjóri.
Tilgangur Kötlumóts er að efla kynningu, samstarf og sönglíf meðal kórfélaga auk þess mun verkefnið stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.500.000.

Aquaculture of Certified Organic Icelandic Marine Macroalgae Species – Umsækjandi: Alkemistinn ehf. Daniel Coaten, verkefnastjóri.
Markmið rannsóknarinnar er að hámarka mögulegt markaðsverðmæti íslenskra stórþörungategunda. Eftirspurnin fer vaxandi á heimsvísu til notkunar í matargerð, snyrtivöru- og lyfjaframleiðslu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.500.000.

Reykjanes Aurora – Umsækjandi: Rúnar Már Sigurvinsson og er hann einnig verkefnastjóri.
Umsækjandi ætlar sér að skila góðri heildarmynd af mögulegri uppbyggingu við Reykjanesvita. Verkefnið mun vonandi veðra grunnur að þvi að uppbygging og framkvæmdir geti hafist við Reykjanesvita. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.500.000.

Samfélagið og ferðaþjónustan, okkar samleið – Umsækjandi: Markaðsstofa Reykjaness, Suðurnesjamenn og Upplýsingamiðstöð Reykjaness.
Stór hluti verkefnisins verður unnið  í samstarfi við Ljósop, félag áhugaljósmyndara á Suðurnesjum, og snýr að því að nota verkefnið þeirra Andlit bæjarins í kynningarátak fyrir Reykjanes.  Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.900.000.

Endurbygging Gömlu búðar, framhald, verkþátturinn byggingarrannsóknir o.fl. Umsækjandi: Reykjanesbær, Valgerður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri.
Gamlabúð er elsta húsið í Reykjanesbæ. Unnið er eftir nákvæmri áætlun við endurgerð hússins sem áætlað er að ljúki árið 2017. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Endurbygging Fischershúss, framhald, verkþátturinn klæðning utanhúss – Umsækjandi: Reykjanesbær, Valgerður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri.
Fischershús, Hafnargata 2 var reist af kaupmanninum Waldimar Fischer árið 1881 fyrir verslun hans. Markmiðið er að endurgerð hússins verði lokið árið 2018. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Vogur. Útstöð í Höfnum – Umsækjandi: Fornleifafræðistofan, Bjarni F. Einarsson, verkefnastjóri.
Verkefni þetta er á lokastigi. Þörfin á nýjum stöðum sem geyma menningarminjar af því tagi sem Vogur er, er mikil, jafnvel knýjandi. Aðgengi er gott að staðnum og því ákjósanlegur áningarstaður ferðamanna. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Safnahelgi á Suðurnesjum – Umsækjandi: Sveitarfélgöin fimm á Suðurnesjum, Valgerður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri.
Verkefnið er liður í fjölgun ferðamanna á Suðurnesjum með þvi að kynna þá fjölmörgu og frábæru ferðamannastaði sem nú þegar eru til staðar á svæðinu og teljast til safna og sýninga. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Mekano fjöltengi – Umsækjandi: Mekano ehf, Sigurður Örn Hreindal Hannesson, verkefnastjóri.
Verkefnið gengur út á að endurhanna, endurbæta og þróa nýja útgáfu af rafmagnsfjöltengi. Margar nýjungar verða kynntar sem miða að því að fækka snúrum og spennubreytum auk þess að bæta nýtingu á plássi. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Vöruþróun og markaðssetning GeoSilica – Umsækjandi:  geoSilica Iceland ehf, Fida Abu Libdeh, verkefnastjóri.
Markmið verkefnisins er vöruþróun, framleiðsla og markaðssetning á verðmætum heilsuvörum sem unnar eru úr kísilríku skiljuvatni jarðvarmavirkjanna. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Lyfvirkar brjósksykur úr hákarlabrjóski og alkoxyglýseról úr hákarlalýsi – Umsækjandi: Holtsbúð 5, Þröstur Sigmundsson, verkefnastjóri.
Fyrirtækið hyggst fullnýta hið dýrmæta hráefni sem hákarl er og nýta brjósk í vinnslu á fæðubótarefnum. Brjósksykur er þekkt fyrir að sýna margvísleg lífeðilisfræðileg áhrif. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Þaraleður, Aukið virði þara með hátækni og hönnun – Umsækjand. Embla productions hf, Eydís Mary Jónsdóttir, verkefnastjóri.
Markmið verkefnisins er að þróa umhverfisvæna aðferð til að breyta þara á þann hátt að hægt verði að nota hann á sama hátt og leður eða sútað roð og er nýtt hráefni fyrir textiliðnaðinn. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Þróun mengunarmiðstöðvar með áherslu á líffræðilega mælikvarða – rannsóknir og vöktun í eiturefnavistfræði – Umsækjandi: Rannsóknarsetur háskóla Íslands á Suðurnesjum, Dr. Halldór Pálmar Halldórsson, verkefnastjóri.
Markmiðið er að koma á fót mengunarmiðstöð með áherslu á líffræðilega mælikvarða, en notkun slíkra mælikvarða við rannsóknir á mengun og heilsu lífvera er tiltölulega ný af nálinni en í miklli sókn á heimsvísu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Gagnvirk heilsugátt fyrir fyrirtæki og stofnanir á Íslandi – Umsækjandi: Jóhann Friðrik Friðriksson, verkefnastjóri.
Verkefnið byggir á fjölþjóðlegu samstarfi sérfræðinga á sviði lýðheilsu auk íslenskra heilbrigðisstofnanna sem hafa það að markmiði að efla og stuðla að heilbrigði meðal íslensku þjóðarinnar. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000.

Ferskir Vindar – Umsækjandi: Ferskir Vindar, Mireya Samper, verkefnastjóri.
Verkefnið er einstakur viðburður sinnar tegundar á Íslandi, mun þar að auki vera í hópi stærstu listahátíða á landinu í dag. Markmiðið með listahátíðinni er að vekja athygli á Suðurnesjum, efla menningu og listir og laða að ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 3.000.000.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024