436.532 heimsóttu íþróttamannvirki Reykjanesbæjar
Aðsókn að íþróttamannvirkjum Reykjanesbæjar jókst um 5% á milli áranna 2000 til 2001. Þetta kemur fram í aðsóknartölum sem lagðar hafa verið fram fyrir Tómstunda- og íþróttaráð Reykjanesbæjar nýverið.Samtals sóttu 436.532 íþróttamannvirkin sem skiptist þannig að í íþróttasalina komu 274.532 en í sundlaugarnar 162.000. Aukningin er um 5% á milli ára.