Bygg
Bygg

Fréttir

40 starfsmenn Vísis flytja til Grindavíkur
Úr vinnslusal Vísis.
Miðvikudagur 30. apríl 2014 kl. 09:11

40 starfsmenn Vísis flytja til Grindavíkur

Síðasti vinnudagur þeirra á Húsavík í gær.

Fjörtíu starfsmenn fiskvinnslufyrirtækisins Vísis á Húsavík og þrjátíu á Djúpavogi hafa skráð sig á lista fyrirtækisins um að þiggja það að flytjast til Grindavíkur og halda þar með vinnunni. Í gær var síðasti vinnudagur hjá starfsfólki Vísis á Húsavík. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV í gær.

Fiskvinnsla Vísis á Húsavík er 60 manna vinnustaður. Eins og fram hefur komið ákvað fyrirtækið að hætta vinnslu þar og flytja allan búnað til Grindavíkur.

Mikið hefur verið leitað til Verkalýðsfélagsins Framsýnar og viðbrögðin eru hörð að sögn Aðalsteins Á. Baldurssonar, formanns félagsins. „Menn eru bara reiðir og skilja þetta ekki og trúa þessu ekki heldur. En ég held að menn eigi bara eftir að sjá betur hvað þetta er erfitt fyrir okkur og slæmt mál.“

Kristján Þráinsson, einn starfsmannanna sem ætlar að flytja til Grindavíkur, segir mikil sárindi meðal starfsfólks Vísis út af þessu. „Og ég segi alveg eins og er að hver einasti maður sem fer burtu vegna þessara aðgerða, fer óánægður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn