Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Föstudagur 25. maí 2001 kl. 15:50

40 kíló af fíkniefnum fóru um Keflavíkurflugvöll

Tollgæslan á John F. Kennedy flugvelli í New York fann rúmlega 40 kíló af fíkniefninu khat í farangri bresks ríkisborgara á þriðjudag. Maðurinn farþegi í flugvél sem hafði millilent á Keflavíkurflugvelli fyrr um daginn. Mbl.is greindi frá. Lagt var hald á fíkniefnin og maðurinn sendur til baka til Bretlands, með sömu vél og hann kom. Fíkniefnið khat mun vera örvandi lyf sem einkum er notað í Austur-Afríku og á Arabíu-skaganum. Efnisins er yfirleitt neytt þannig að lauf af khat-runna eru tuggin.
Ekki er vitað til þess að efnið hafi fundist hér á landi en á síðasta ári lagði tollgæslan í Noregi hald á um fjögur tonn af því og sænska tollgæslan lagði hald á um þrjú.
Þar sem vélin millilenti á Keflavíkurflugvelli var farangurinn ekki tollskoðaður hér á landi.
Bílakjarninn
Bílakjarninn