39 milljón kr. styrkir til Geopark og Garðskaga
Hlutu styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur samþykkt úthlutun styrkja til 66 styrkja að upphæð tæplega 600 m. kr. Þrjú verkefni á Suðurnesjum hljóta styrki að þessu sinni. Reykjanes Geopark hlaut 25.600.000, m. kr. styrk vegna framkvæmda við Brimketil í landi Grindavíkur. Um er að ræða bílastæði, stíga og útsýnispalla. Sveitafélagið Garður fékk svo styrk upp á 13.200.00 kr. vegna uppbyggingar á salernis-og hreinlætisaðstöðu við Byggðasafnið á Garðskaga. Selatangar, kr. 1,38 millj. endurbætur á aðgengi og aukin upplýsingagjöf.
Íslandskort með styrkveitingum
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun vorið 2016. Alls eru veittir styrkir til 66 verkefna hringinn í kringum landið en að þessu sinni var sérstaklega horft til öryggismála og miða 37 verkefnanna að því að bæta öryggi á ferðamannastöðum. Alls nema styrkir til einstakra verkefna tæplega 596 m.kr. en 51. m.kr. verður úthlutað sérstaklega af ráðherra ferðamála til brýnna verkefna vegna öryggis á ferðamannastöðum að tillögu Stjórnstöðvar ferðamála.
Hæstu einstöku styrkirnir eru 30 m.kr. og eru veittir fjórir slíkir; til verkefna við Dynjanda, Geysi, Skaftafell og Dettifoss.
Reykjanes Geopark - Brimketill: Aðkoma og upplifunarsvæði Kr. 25.600.000,- styrkur til framkvæmda við Brimketil í landi Grindavíkur á grundvelli samþykkts deiliskipulags. Um er að ræða bílastæði, stíga og útsýnispalla. Vel undirbúið og mikilvægt verkefni vegna aðgengis og öryggis ferðamanna, og grunndvallarinnviða á sífellt fjölsóttari ferðamannastað.
Sveitarfélagið Garður - Salernis- og hreinlætisaðstaða Garðskaga Kr. 13.200.000,- styrkur vegna uppbyggingar á salernis-og hreinlætisaðstöðu við Byggðasafnið á Garðskaga. Brýnt verkefni til uppbyggingar grunnaðstöðu á sívinnsælli áfangastað, ekki síst með tilliti til norðurljósaferða utan hefðbundins opnunartíma.
Minjastofnun Íslands - Selatangar. Endurbætur á aðgengi og aukin upplýsingagjöf. Kr. 1.380.000,- styrkur til endurbóta á aðgengi og aukinni upplýsingagjöf við friðlýsta minjastaðinn á Selatöngum í Grindavík. Verkefnið gerir gönguleiðina og sjálfan minjastaðinn öruggari fyrir ferðamenn, auk þess að styðja við upplifun á svæðinu og eykur þannig líkur á góðri umgengni við minjar og náttúru.