Bygg
Bygg

Fréttir

38 milljónir í malbik og gangstéttir
Miðvikudagur 12. september 2007 kl. 14:58

38 milljónir í malbik og gangstéttir

Meirihluti bæjarstórnar í Garði hyggst ráðstafa 38 milljónum af tekjuaukningu ársins til malbikunar og gangstéttagerðar. Tekjuaukningin er tilkomin vegna sölu á hlut í Hitaveitu Suðurnesja og hefur bæjastórnin samþykkt að verja 50 milljónum af henni m.a. til að  flýta ýmsum verkefnum sem voru á þriggja ára áætlun.

Til uppbygginar á starfsemi unglingaráðs Víðis verður varið 800 þúsund krónum auk þess sem sömu upphæð verður varið til starfsemi æskulýðsmiðstöðvar. Þá verður einnig sömu upphæð varið til tómstundastarfs eldri borgara.
Þá verður samið við verktaka um að fullgera 4. deild leikskólans en vegna fjölda barna á leikskólanum er áríðandi að taka deildina í notkun sem fyrst. Reiknað er með að kostnaður vegna þess nemi um 9,6 milljónum króna.


Mynd: Horft yfir Garðskaga. Ljósm: Oddgeir Karlsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn