364 kannabisplöntur teknar í Vogum
Lögreglan á Suðurnesjum með aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra upprætti kannibisframleiðslu á tveimur heimilum í Vogum á Vatnsleysuströnd í gærkvöldi. Á öðru heimilinu voru haldlagðar 265 plöntur en 99 á hinu. Plöntunar voru á ýmsum framleiðslustigum. Tveir menn voru handteknir vegna málanna.
Mynd af kannabisplöntum. Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.