3600 nöfn til stuðnings séra Sigfúsi

Stuðningsmenn sr. Sigfúsar B. Ingvasonar standa fyrir söfnun undirskrifta til stuðnings honum í kjölfar þess að valnefnd kaus að velja séra Skúla S. Ólafsson í embætti sóknarprests Keflavíkurkirkju.
Á vef Keflavíkurkirkju kemur fram að aðalmenn í valnefnd séu Anna Jónsdóttir, Birgir Guðnason, Gunnar Sveinsson, Halldór Levý Björnsson og Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir.
Varamenn í valnefnd eru þau Einar Magnússon, Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir, Þórunn Íris Þórsdóttir, Tómas Tómasson og Elías Jóhannsson.
Málinu var vísað til biskups og mælti hann með því við kirkjumálaráðherra að velja séra Skúla S. Ólafsson til starfsins. Ráðherra skipar í embættið til fimm ára.
Undirskriftasöfnunin fer fram á netinu á slóðinni http://sigfus.mis.is/
Á síðunni segir:
„Undirritaðir íbúar í Reykjanesbæ lýsa yfir stuðningi við sr. Sigfús og skora á sóknarnefnd að endurskoða ákvörðun valnefndar um val á sóknarpresti.
Við teljum að niðurstaða valnefndar endurspegli ekki vilja íbúa í Reykjanesbæ.
Sr. Sigfús sem hefur starfað hér í bæ s.l. 13 ár. Á þeim tíma hefur hann náð til fjöldans og reynst sóknarbörnum sínum vel þegar á hefur reynt og áunnið sér traust og virðingu.“