Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

339 íbúðir í fimm til sex hæða húsum á Vatnsnesi
Mánudagur 27. febrúar 2023 kl. 08:37

339 íbúðir í fimm til sex hæða húsum á Vatnsnesi

Ný deiliskipulagstillaga fyrir Vatnsnes og Hrannargötu 2-4 gerir ráð fyrir 339 íbúðum í fimm til sex hæða húsum og sameiningu lóða í samræmi við uppdrætti JeES arkitekta ehf. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar veitti heimild til að auglýsa deiliskipulagstillöguna samhliða auglýsingu á endurskoðun aðalskipulags.

Tvær athugasemdir bárust við deiliskipulagstillöguna en haldinn var íbúafundur á auglýsingatíma hennar. Vegagerðin gerði athugasemd og varaði við að skyggt yrði á ljósmerki vita. Merkið var fært í samráði við Vegagerðina og hafnarstjórn. Vegagerðin staðfesti að breytingin væri fullnægjandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Andmæli bárust frá nágranna sem varaði við að uppbygging næst þeirra fasteign drægi úr möguleikum uppbyggingar á þeirra lóð. HS Veitur gerðu jafnframt athugasemdir við að breyta þurfi og bæta veitukerfi fyrir reitinn. HS Veitur þurfa að hanna dreifiveitulagnir til samræmis við kröfur notenda og fjármagna það með sínum til þess ætluðu tekjustofnum í samræmi við þarfir lóðarhafa og landnotkun.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu.