HSS
HSS

Fréttir

330 tölvunörd á leið til Mexíkó frá Keflavík
Þriðjudagur 27. apríl 2010 kl. 20:51

330 tölvunörd á leið til Mexíkó frá Keflavík


Flugvallarverðir á Keflavíkurflugvelli óku í kvöld marga hringi umhverfis Airbus A330 farþegaþotu sem staðsett er á austursvæði Keflavíkurflugvallar. Farþegaþotan er hingað komin til að sækja hóp Íslendinga sem er á leið í skemmtiferð til Mexíkó á morgun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Flugvélin mun samkvæmt heimildum Víkurfrétta fara frá Keflavíkurflugvelli kl. 07 í fyrramálið með hóp 330 íslenskra starfsmanna og kvenna tölvuleikjafyrirtækisins CCP. Áfangastaðurinn mun vera Puerto Vallerta í Mexíkó og yfirskrift ferðarinnar er menningarferð. CCP er örugglega þekktast fyrir tölvuleikinn EVE ONLINE.

Haft er fyrir víst að tölvufólkið sé nú með krosslagða fingur um að flogið verði frá Keflavík í fyrramálið vestur um haf, því gosaska hefur verið að trufla flugumferð um Keflavíkurflugvöll síðustu daga.

Meðfylgjandi ljósmynd tók útsendari Víkurfrétta á Keflavíkurflugvelli nú áðan þar sem sjá má bíl flugvallarvarða á vakt við flugvélina.

Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson