Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

30km hámarkshraði hefur fækkað slysum
Mánudagur 19. apríl 2010 kl. 08:49

30km hámarkshraði hefur fækkað slysum


Fullvíst er talið að lækkun hámarkshraða í 30km á götum íbúðahverfa hafi skilað sér í verulegri fækkun umferðarslysa í Reykjanesbæ. Þetta kom fram á umferðarþingi sem haldið var í Reykjanesbæ nú fyrir helgi. Ummferðarhraði hefur verið ákeðinn með hliðsjón af  umferðarmælingum í hverfum bæjarins og er það talið eiga stóran þátt í fækkun umferðarslysa.

Þetta kom fram á umferðaröryggisþingi sem haldið var í Reykjanesbæ s.l. fimmtudag en þar komu saman til skrafs og ráðagerða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar, lögreglu, umferðarstofu, fulltrúar foreldrafélaga og íbúar.
Upplýsingar úr hraðagreinum eru nýttar til þess að greina umferð í hverfunum og m.a. þörf fyrir hraðahamlandi aðgerðir eins og hraðahindranir. Einnig eru þær sendar til lögreglunnar sem nýtir þær í starfi sínu. Jafnframt hefur Reykjanesbær unnið með lögreglu í sérstöku átaki í hraðamælingum sem gerðar eru þá viku í senn í ákveðnum hverfum og hafa þá ökumenn fengið sekt fyrir að aka hraðar en 30 km í íbúahverfi.

Talið er að þessar aðgerðir hafi aukið meðvitund íbúa um umferðarhraða í hverfum og lækkað hann umtalsvert.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024