300 tonn af Kolgrafarfjarðar-síld til Sandgerðis
Skinnfiskur ehf. í Sandgerði hafði í gær tekið á móti 300 tonnum af síld sem drapst og rak á land í Kolgrafarfirði á Snæfellsnesi. Meiri síld er væntanleg í dag en þá verður hætt að taka á móti síld til fóðurvinnslu.
Flutningaskip kom til Sandgerðis um helgina og þá hófst útskipun á afurðum frá fóðurvinnslunni Skinnfiski. Fóðrið er flutt til loðdýrabúa í Danmörku.
VF-myndir: Hilmar Bragi