300.000 gestir á Garðskaga á ári
Um og yfir 300.000 ferðamenn leggja leið sína á Garðskaga á ári. Þetta er niðurstaða talningar ferðamanna á Reykjanesi.
Talsverð uppbygging er að eiga sér stað í ferðaþjónustu á Garðskaga síðustu misseri. Veitingahús hefur opnað í byggðasafninu og unnið er að uppsetningu nýrra sýninga, m.a. í Garðskagavita. Þá hefur verið opnað kaffihús í gamla vitanum á Garðskaga. Ný salerni eru einnig að opna á Garðskaga, salerni sem eru opin ferðafólki allan sólarhringinn, allan ársins hring.
Á Garðskaga hefur einnig verið opnað nýtt hótel með 26 herbergjum.