Bygg
Bygg

Fréttir

3,7 milljarðar í handbært fé við árslok
Laugardagur 17. október 2009 kl. 09:30

3,7 milljarðar í handbært fé við árslok


Reiknað er með að rekstarniðurstaða A-hluta í ársreikningi Grindavíkurbæjar verði neikvæð um 50,3 milljónir króna, samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun 2009 sem samþykkt var á síðasta bæjarstjórnarfundi. Munar mestu um lækkun vaxtatekna að upp á 100 milljónir króna.

Fjárfesting í varanlegum fastafjármunum er um 773,6 milljónir og er það hækkun um 10,4 milljónir frá því sem áður var áætlað.
Gert er ráð fyrir lántöku að fjárhæð 100 milljón króna vegna Hafnarsjóðs. Aðrar framkvæmdir eru fjármagnaðar af eigin fé bæjarins. Gert er ráð fyrir að handbært fé í árslok 2009 verði 3,752 milljónir kr.

Bílakjarninn
Bílakjarninn