291 milljón kr. frá Jöfnunarsjóði í Garðinn
Sveitarfélagið Garður fékk rúmlega 291 milljón króna framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2012.
Stærsta framlagið er svokallað tekjujöfnunarframlag og útgjaldajöfnunarframlag upp á tæpar kr. 176 milljónir króna. Framlög til reksturs grunnskóla, sérþarfa fatlaðra nemenda og nýbúafræðslu eru upp á tæpar 84 milljónir króna. Rúmar 7,7 milljónir króna koma vegna almennra og sérstakra húsaleigubóta. Vegna breytinga á álagningarstofni mannvirkja koma 23,3 milljónir króna og svo fékk Sveitarfélagið Garður 342.148 kr. til eflingar á tónlistarnámi.