Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Þriðjudagur 25. apríl 2000 kl. 20:09

250 milljóna kr. fráveitulán

Reykjanesbær og Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) undirrituðu í dag lánasamning vegna fráveituframkvæmda í Reykjanesbæ. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri undirritaði fyrir hönd bæjarsjóðs og Jón Sigurðsson, bankastjóri NIB og fyrrverandi ráðherra fyrir hönd NIB. Einnig var undirritaður samningur milli NIB og Íslandsbanka, en Íslandsbanki mun annast alla umsýslu með láninu. Þann samning undirrituðu Jón Sigurðsson og Una Steinsdóttir, útibústjóri. Lánið nemur 250 milljónum króna til 12 ára, en það er tekið í evrum. Vextir á evruna eru 3,9% auk álags, sem er 0,52%, en það gerir 4,45%.Fyrrgreint lán er tekið vegna fráveituframkvæmda, sem skiptast í tvo áfanga. Sá fyrri er Njarðvíkurhverfi og Varnarliðssvæðið, en sá síðari er Keflavíkur- og Hafnahverfi. Samningar náðust við varnarliðið árið 1998, um gerð nýs fráveitukerfis sem tengist að hluta fráveitukerfi Njarðvíkurhverfis og eru framkvæmdir þess hluta vel á veg komnar. Samkomulagið byggist á gerð dælu- og hreinsistöðvar, sem og 850 metra útrásar út frá Kirkjuvík í Ytri-Njarðvík. Gert er ráð fyrir að allar útrásir Njarðvíkurhverfis verði tengdar þessari stóru útrás, sem dælir frárennslinu út fyrir það svæði sem mengun gæti orðið á. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður um 1.200 milljónir króna, sem skiptist þannig að Varnarliðið greiðir 52,03% en Reykjanesbær 47,97%. Vegna þessara framkvæmda ákvað bæjarstjónin árið 1997 að leggja á tímabundin fráveituskatt að upphæð kr 6.000 á hvert fasteignanúmer. Skattur þessi færir sveitarfélaginu um 25 milljónir króna í tekjur á ári.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024