Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

23 verkefni fengu styrk úr samfélagssjóði Isavia
Þriðjudagur 5. febrúar 2019 kl. 15:17

23 verkefni fengu styrk úr samfélagssjóði Isavia

Fjögur verkefni frá Suðurnesjum fengu styrk

Evrópumót í keltneskum fangbrögðum í Reykjanesbæ, Trúðaheimsóknir á Barnaspítala Hringsins, flugsýning á Reykjavíkurflugvelli og forvarnarstarf gegn fíkniefnum voru meðal verkefna sem hlutu styrk úr samfélagssjóð Isavia í seinni úthlutun fyrir árið 2018. Styrkir voru veittir við hátíðlega athöfn þann 5. febrúar 2019 en aldrei hafa fleiri málefni hlotið styrk úr sjóðnum. Við val á styrkþegum er áhersla lögð á umhverfismál, mannúðarmál, forvarnir, flugtengd málefni, listir, menningu og menntamál. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og var þetta seinni úthlutun fyrir árið 2018. Ætíð berst nokkuð mikill fjöldi umsókna.

Verkefnin sem tengjast Suðurnesjum og fengu styrk að þessu sinni eru:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

·      Þekkingarsetur Suðurnesja fær styrk vegna verkefnis sem gengur út á að innleiða samfélagsvísindi hjá Þekkingarsetrinu. Mögulegur ávinningur er aukin umhverfisvitund og umhverfisvernd.

·      Glímusamband Íslands fær styrk vegna Evrópumóts í keltneskum fangbrögðum sem haldið verður í Reykjanesbæ.

·      Knattspyrnufélagið Víðir fékk styrk til barna- og unglingastarfs félagsins.

·      Skátafélagið Heiðabúar fékk ferðastyrk í félagsútilegur.

Önnu verkefni sem fengu styrk:
·      Berglind Baldursdóttir fékk styrk fyrir forvarnarverkefni tengt heimilisofbeldi í samstarfi við Kvennaathvarfið.

·      Birta landssamtök fengu styrk fyrir fræðslu og hvíldardaga fyrir foreldra og fjölskyldur sem hafa misst börn sín skyndilega.

·      Delta Kappa Gamma fékk styrk vegna ráðstefnu í Reykjavík sem ber heitið Research and Practice in Enhancing the Learning Community and the 6 Cs.

·      Félag heyrnarlausra fékk styrk fyrir túlkun bókarinnar Drekinn innra með þér yfir á íslenskt táknmál.

·      Fjölskylduhjálp Íslands fékk styrk fyrir matarúthlutanir til skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar.

·      Flugmálafélag Íslands fékk styrk vegna flugsýningar á Reykjavíkurflugvelli sem haldin var í september 2018.

·      Hildur H. Pálsdóttir fékk styrk fyrir forvarnarverkefni gegn fíkniefnum fyrir grunnskóla, foreldra og fleiri.

·      Íþróttafélagið Magni – yngri flokkar fengu styrk til að efla barna- og unglingastarf félagsins.

·      Lionsklúbburinn Hængur Akureyri fékk styrk til ræktunar á skógarreit í Glerárdal ofan Akureyrar.

·      Reykjanesbær fékk styrk fyrir pólska menningarhátíð sem haldin er í Reykjanesbæ.

·      Rótin – félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda fékk styrk vegna ráðstefnunnar Drögum (kynja)tjöldin frá – til móts við kynjaða heildarsýn á áföll og fíkn.

·      Safe ehf. fékk styrk vegna upplýsingaverkefnis fyrir erlenda ferðamenn sem ferðast um landið á bílaleigubílum.

·      Saga forlag Ísland fékk styrk vegna nýrrar heildarútgáfu Íslendingasagna og -þátta í fimm bindum. Útgáfan er í tilefni af aldarafmæli fullveldis á Íslandi.

·      SamAust, samtök félagsmiðstöðva á Austurlandi fengu styrk vegna Austurlandsmóts fulltrúa félagsmiðstöðva

·      Skógarmenn KFUM – Vatnaskógur fengu styrk til byggingar svefns- og þjónustuskála í Vatnaskógi.

·      Stjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna fær styrk sem ætlað er að vekja athygli á því sem vel er gert í íslensku tónlistarlífi.

·      Trúðavaktin fékk styrk til heimsókna íslensku sjúkrahústrúðanna á Barnaspítala Hringsins.

·      Vakandi fær styrk vegna átaks í eflingu vitundarvakningar um matarsóun og umhverfismál á Íslandi.

·      Viðburðastofa Norðurlands fær styrk vegna vetraríþróttahátíðarinnar Íslensku vetrarleikarnir í Hlíðarfjalli.