MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík
Það hefur mikið mætt á Fannari Jónassyni, sem senn lætur af starfi bæjarstjóra Grindavíkur.
Fimmtudagur 2. júlí 2026 kl. 12:01

23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík

Umsóknarfrestur um starf bæjarstjóra Grindavíkur rann út þann 18. júní síðastliðinn. Alls bárust 23 umsóknir um starfið, en fjórir umsækjendur drógu umsókn sína til baka eftir að fresturinn rann út.

Á listanum yfir þá 19 sem eftir standa má finna fjölmarga reynslubolta úr atvinnulífinu, sveitarstjórnarmálum og stjórnmálum. Þar á meðal eru fyrrverandi alþingismenn  og nokkrir einstaklingar með ríka reynslu af sveitarstjórnarstigi, þar á meðal Magnús Stefánsson, fyrrverandi bæjarstjóri Suðurnesjabæjar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Listi yfir umsækjendur:

  • Angantýr Einarsson, fyrrverandi skrifstofustjóri

  • Aron Heiðar Steinsson, deildarstjóri

  • Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður

  • Birgir Þórarinsson, sjálfstætt starfandi

  • Dagbjartur Willardsson, fasteignasali

  • Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri

  • Enok Holm Fanndal, bílasali

  • Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, fjármála- og rekstrarstjóri

  • Gísli Rafn Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri

  • Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, stjórnenda- og leiðtogaþjálfi

  • Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri

  • Jóhann Friðrik Friðriksson, ráðgjafi

  • Jón Ingi Hákonarson, ráðgjafi

  • Magnús Stefánsson, fyrrverandi bæjarstjóri

  • Maríanna Hugrún Helgadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri

  • Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri

  • Pétur Georg Markan, fyrrverandi bæjarstjóri

  • Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi rekstrarstjóri

  • Sverrir Kári Karlsson, ráðgjafi

Bílakjarninn
Bílakjarninn