22 kaupsamningar í maí
Alls var 22 fasteignakaupsamningum þinglýst í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum. Þar af voru 9 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 445 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna, skv. gögnum Fasteignaskrá Ríkisins.
Á sama tíma var 8 samningum þinglýst á Akranesi, 14 á Árborgarsvæðinu og 33 á Akureyri. Alls var 37 samningum þinglýst í Reykjanesbæ í maí 2008.