Bygg
Bygg

Fréttir

210 þús. kr. hraðasekt og ökuleyfisssvipting á brautinni
Föstudagur 7. september 2018 kl. 11:41

210 þús. kr. hraðasekt og ökuleyfisssvipting á brautinni

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært á annan tug ökumanna fyrir hraðakstur í  umdæminu það sem af er þessari viku. Sá sem hraðast ók mældist á 148 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann þarf að greiða 210 þúsund krónur í sekt auk þess ökuleyfissviptingar í einn mánuð.

Fáeinir voru teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna- eða ölvunarakstur. Tveir þeirra óku sviptir ökuréttindum og einn til viðbótar með fíkniefni í fórum sínum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist voru ótryggðar eða óskoðaðar.