200 tonna netabátur strandaði við Sandgerði
Björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði tókst á miðnætti að bjarga Ársæli ÁR-66 af strandstað í innsiglingunni til Sandgerðis.
Ársæll ÁR, sem er tæplega 200 brúttólesta netabátur hafði siglt af leið í innsiglingunni og strandaði á leið sinni upp í Eyrina við Sandgerði.
Fjölmennt björgunarlið á Hannesi Þ. Hafstein og öðrum björgunarbátum brugðust skjótt við neyðarkallinu frá netabátnum.
Agnar Trausti Júlíusson, skipsstjóri á björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein, sagði í samtali við Víkurfréttir að svo virtist vera að skipið hafi setið fast undir miðju skipins. Þannig hafi bæði stefni og skutur verið laus en skipið sat á miðjum skrokknum.
Það var síðan dótturbátur Hannesar Þ. Hafstein, Siggi Guðjóns, sem losaði Ársæl ÁR af strandstað með því að ýta honum af festunni. Ársæll ÁR sigldi síðan til hafnar undir eigin vélarafli.
Þegar í land var komið skoðaði kafari botn skipsins. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort skemmdir hafa orðið á skipinu.
Að sögn skipsstjórans á björgunarskipinu þá virðist áhöfnin á Ársæli ÁR vera heppin að hafa strandað skipi sínu á þessum stað, því Eyrin er mjög grýtt og þar getur verið erfitt að losa svo stórt skip ef það skorðast fast í grjótinu.
Lögreglan í Keflavík mun fara með rannsókn óhappsins.
Video frá björgunaraðgerðum ásamt viðtali við Agnar Trausta Júlíusson kemur á vef Víkurfrétta á laugardagsmorgun.
Myndir: Frá björgunaraðgerðum á miðnætti í kvöld. Efri myndin er tekin á skjá sjónvarpstökuvélar sem tók upp björgunaraðgerðir. Neðri myndin er tekin þegar Ársæll ÁR sigldi inn í höfnina í Sandgerði.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson