200% fleiri bókanir með IEX vestur um haf
Fjörutíu prósent fleiri ferðast með Iceland Express í apríl í ár en á sama tíma í fyrra. Félagið hefur bætt við ferðum af þessum sökum nú um páskana og þessa dagana er flogið 2var á dag til London og Kaupmannahafnar og bætt hefur verið við flugi til New York.
Ameríkuflugið gengur vonum framar. Í vetur var flogið tvisvar í viku til New York og áformað var að hefja daglegt flug þangað í júní. Vegna mikillar eftirspurnar hefur félagið bætt við ferðum fyrr en áformað var, enda hafa nú þegar rösklega 200 prósent fleiri bókað far með félaginu vestur um haf á næstunni, en á sama tíma í fyrra. Ljóst er að flug Iceland Express til Ameríku er komið til að vera og nýir áfangastaðir munu bætast við.