20 ára vígsluafmæli Víðihlíðar
Þann 24. september sl. voru liðin 20 ár frá vígslu hjúkrunardeildarinnar í Víðihlíð. Fyrsti skjólstæðingur deildarinnar..
Þann 24. september sl. voru liðin 20 ár frá vígslu hjúkrunardeildarinnar í Víðihlíð. Fyrsti skjólstæðingur deildarinnar kom til dvalar 8. september 1992, en þá var efri hæðin tekin í notkun með 13 rúmum. Formleg vígsla deildarinnar var svo 24. september 1992 þar sem Sighvatur Björgvinsson þáverandi heilbrigðisráðherra, Hrafn Pálsson formaður byggingarnefndar og Jóhann Einvarðsson þáverandi framkvæmdastjóri HSS tóku til máls að viðstöddu fjölmenni. Að lokum blessaði séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir heimilið sem hefur starfað farsællega síðan.
Haldið verður upp á 20 ára vígsluafmæli Víðihlíðar síðar en nú standa yfir framkvæmdir á húsnæði Víðihlíðar. Verður það auglýst nánar síðar.
Heimild: Heimasíða HSS