18 þotur og fjárfesting fyrir 4,5 milljarða króna
Hollenska fyrirtækið E.C.A. Program Ltd. hefur í hyggju að setja á fót, á Ásbrú í Reykjanesbæ, viðhaldsstöð fyrir 18 vopnlausar orrustuflugvélar. Samtals er áætlað að 150-200 föst störf skapist hjá fyrirtækinu, auk afleiddra starfa en markmiðið er að setja upp starfsemina á fyrrum athafnasvæði Varnarliðsins. Ljóst er að viðhaldsstarfsemi vegna flugvélanna verður umsvifamikil og verkefnið felur í sér tækifæri til atvinnusköpunar með víðtækum margfeldisáhrifum. Unnið er að gerð samkomulags við íslensk stjórnvöld um aðstöðu fyrir starfsemina.
Húsnæðisþörf fyrirtækisins er einnig veruleg og er horft til nýtingar á núverandi húsnæði á svæðinu, en auk þess þarf að ráðast í miklar framkvæmdir til að mæta þörfum til fulls. Gert er ráð fyrir að E.C.A. Program Ltd. ráðist í fjárfestingar upp á allt að 4,5 milljarða króna og er fjármögnun verkefisins tryggð. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs vegna starfseminnar verði 700-800 milljónir króna á ári.
Fyrirtækið E.C.A. Program Ltd. sérhæfir sig í rannsóknum og tækiþróun á sviði loftvarna og annast þjálfun fyrir aðildarþjóðir NATO um alla Evrópu. Áætlað er að fyrirtækið staðsetji hér viðhaldsstöð fyrir flugvélar ásamt þyrlum sem kæmu til með að hafa hér heimastöð, auk alls skrifstofuhalds fyrirtækisins. Stærsti hlutinn af starfseminni fer þó fram erlendis.
Gangi samningar við íslensk stjórnvöld eftir verður um mikla lyftistöng að ræða fyrir Suðurnes og landið í heild. Engar varnaræfingar munu fara fram hér á landi á vegum fyrirtækisins.