18 ára ökuníðingur á ofsahraða
Átján ára ökumaður var sviptur ökréttindum á staðnum þegar lögregla stöðvaði hann á Reykjanesbraut í nótt en pilturinn hafði mælst á 178 kílómetra hraða inn við Grindavíkurafleggjara. Hann var með farþega í bílnum á leið til Reykjavíkur.
Fjórir til viðbótar voru teknir vegna hraðaksturs á Reykjanesbraut en nokkuð hefur borið á slíku háttarlagi ökumanna upp á síðkastið.