172 tonna byggðakvóti til Suðurnesja
Suðurnes fá 172 tonna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022-2023. Á fiskveiðiárinu 2022-2023 er almennum byggðakvóta úthlutað til 51 byggðalags í 29 sveitarfélögum. Heildarúthlutun eykst um 262 tonn milli ára og verða því breytingar á magni úthlutaðra þorskígildistonna til einstakra byggðalaga.
Sandgerði fékk úthlutað 65 tonnum en fékk 70 tonn í fyrra. Garður fékk úthlutað 89 tonnum en hafði fengið 70 tonn í fyrra. Þá fær Sveitarfélagið Vogar 18 tonn núna en fékk 15 tonn í fyrra.
Úthlutunin byggir á reglugerð nr. 1018/2022 um úthlutun byggðakvóta til byggðalaga á fiskveiðiárinu 2022/2023. Einnig er stuðst við upplýsingar frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks auk samdráttar í rækju- og skelvinnslu.
Byggðalög með færri en 400 íbúa fá 3.271 þorskígildistonnum úthlutað, byggðalög með fleiri en 400 íbúa fá 1.629 þorskígildistonnum úthlutað. Alls fá 14 byggðalög lágmarksúthlutun og fjögur byggðalög fá hámarksúthlutun.
Úthlutun fiskveiðiársins 2022-2023 eftir landshlutum
Austurland 863 tonn
Norðurland eystra 1.086 tonn
Norðurland vestra 460 tonn
Suðurland 196 tonn
Suðurnes 172 tonn
Vestfirðir 1.856 tonn
Vesturland 267 tonn