HSS
HSS

Fréttir

17 útköll hjá Brunavörnum Suðurnesja á „áramótavaktinni“
Sunnudagur 1. janúar 2006 kl. 15:59

17 útköll hjá Brunavörnum Suðurnesja á „áramótavaktinni“

Alls voru 17 útköll hjá Brunavörnum Suðurnesja á „áramótavaktinni“. Mikið annríki var hjá slökkviliðs-og sjúkraflutningamönnum BS frá „kvöldmat“ á gamlárskvöld til klukkan sjö á nýársdagsmorgun. Flest tilfellin voru tengd sjúkraflutningum sem voru minniháttar og allir sjúkrabílar voru samtíma í útkalli á tímabili.

Veðrið var með eindæmum gott og margir á ferðinni. Slökkviliðsmenn á vakt voru sammála um að miklu af flugeldum hafi verið skotið upp og höfðu á orði að þetta væri sennilega það mesta sem þeir höfðu séð.

Tilkynnt var um brunaboð á Suðurgötu rétt um klukkan 19:30, orsök reyndist eldamennska. Fyrsti staðfesti eldurinn á árinu 2006 var um klukkan 01:05, en þá barst BS tilkynning um eld í rusli á horni Ránarvalla og Óðinsvalla.

Skömmu síðar var tilkynnt um eld í bíl rétt neðan við hitaveitutanka utan Aðalhliðs á Keflavíkurflugvelli, þar sem við vorum í önnum að sinna öðrum útköllum afgreiddu félagar okkar í Slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli þann eld farsællega.

Rétt fyrir klukkan 02:00 kom brunaboð frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar við Austurgötu, en þar hafði flugeldur farið innum póstlúgu, greiðlega gekk að afgreiða það, dálítill reykur var í forstofu en tjón er minniháttar.

Á sama tíma var tilkynnt um eld í Bolafæti, þar hafði verið safnað saman rusli og kveikt í, fljótlega gekk að slökkva í því enda minniháttar.

Á sama tíma var erill í sjúkraflutningum en samtals var fjöldi þeirra 11, orsök flestra voru veikindi og minniháttar slys

Einn var þó fluttur frá Samkomuhúsinu í Garði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir ryskingar og töluvert annríki var á Heilbrigðisstofnuninni. Ekki voru nein alvarleg slysaútköll hjá BS vegna flugelda.

Öryggisvörður fór í venjubundnar eftirlitsferðir og var kallaður í tvö innbrotsboð vegna öryggiskerfa, m.a. var brotin rúða í Kaskó en engu var þó stolið, svo vitað sé.

Skipulag og útkallstyrkur liðsins var góður þessi áramót, samtals voru um 14 slökkviliðs-og sjúkraflutningamenn á vöktum og bakvöktum til að bregðast við þessum „álags neista“, eða fjölda útkalla. Varðstjóri var Ómar Ingimarsson.

Þessi áramót eru mun annasamari en undanfarin ár og vil ég vil þakka þeim slökkviliðs-og sjúkraflutningamönnum BS sem voru við vinnu og sérstaklega þeim sem buðu sig fram á „bakvaktir“ fyrir óeigingjarnt og gott starf þessa nótt, segir í pistili sem Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri skrifar á vef Brunavarna Suðurnesja í dag.
Bílakjarninn
Bílakjarninn