Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

17 ára tekinn á 150 km. hraða
Þriðjudagur 28. apríl 2015 kl. 10:20

17 ára tekinn á 150 km. hraða

- einn ók of hratt var með tveggja ára barn í lausum barnabílstól.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært 28 ökumenn fyrir of hraðan akstur í umdæminu á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 150 km. hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km. á  klukkustund. Þar var á ferðinni sautján ára piltur sem var með rúmlega tveggja mánaða gamalt ökuskírteini. Haft var samband við forráðamenn og þeim tilkynnt um málið.

Annar ökumaður, sem ók of hratt var með tveggja ára barn í barnabílstól í aftursætinu, en öryggisbelti hans var ekki spennt.

Fleiri ökumenn urðu uppvísir að því að brjóta umferðarlög ss. með því að sinna ekki stöðvunarskyldu og tala í síma án tilskilins búnaðar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024