Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

17 ára tekinn á 148 km hraða
Föstudagur 8. september 2017 kl. 10:55

17 ára tekinn á 148 km hraða

Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 148 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund, má búast við 130 þúsunda króna sektargreiðslu, sviptingu ökuleyfis í einn mánuð og þremur refsipunktum í ökuferilsskrá. Ökumaðurinn reyndist 17 ára og var forráðamönnum hans gert viðvart.

Fleiri voru kærðir fyrir hraðakstur en enginn ók þó eins hratt og umræddur ökumaður. Þá voru tveir ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra ók sviptur ökuréttindum og hinn, karlmaður á þrítugsaldri, hafði aldrei öðlast slík réttindi.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024