16 verkefni fengu styrki fyrir 22 millj. kr. frá Atvinnuþróunarráði
Eins og kunnugt er gerðu Iðnaðarráðuneytið og Atvinnuþróunarráð sveitarfélaga á Suðurnesjum með sér Vaxtarsamning með það að markmiði að efla samkeppnishæfni atvinnulífsins og nýsköpun á Suðurnesjum. Byggt er á hugmyndafræði klasa enda er eitt af markmiðum vaxtarsamninga um land allt að stofna til og efla klasasamstarf til uppbyggingar atvinnulífs og nýsköpunar. Í fyrstu úthlutun fyrir tæpu ári síðan voru 15 verkefni styrkt og öll byggðu þau verkefni á klasasamstarfi.
Verkefnin voru af margvíslegum toga, rannsóknarverkefni, ferðaþjónustuverkefni, verkefni tengd flugstarfsemi og sjávarútvegi svo eitthvað sé nefnt. All flest hafa verkefnin lokið eða eru um það bil að ljúka þeim verkþáttum sem samningur var gerður um í kjölfar úthlutunar. Í nokkrum þessara verkefna hefur þróunin orðið sú að fyrirtækjum hefur fjölgað sem vilja vera þátttakendur í klasa viðkomandi verkefnis, þannig virkar klasinn best, fleiri fyrirtæki eru virkir þátttakendur, stuðningur við verkefnið verður öflugra og verkefni þróast af festu og öryggi. Fyrirtækin í klasanum geta átt í harðri samkeppni sín á milli en koma hver með sína þekkingu að þróun einstakra verkefna sem klasinn ákveður að vinna sameiginlega að.
Í annað sinn var auglýst eftir styrkhæfum verkefnum í október sl. 40 umsóknir bárust og í gær var tilkynnt um 16 verkefni sem hljóta stuðning Vaxtarsamnings. Sótt var um verkefnastyrki að fjárhæð kr. 127.856.- milljónir króna. Áætlað heildarverðmæti verkefnanna að mati þátttakenda sjálfra eru 318.886 millj. Kr. Eins og áður er sótt til fjölbreyttra verkefna.
Eftir farandi verkefni hljóta styrk að þessu sinni.
Nr. 1. MYR design
Fyrirtækið framleiðir eigin vörulínu í fatnaði og fylgihlutum. Verkefnið lýtur að því að styrkja markaðssetningu fyrirtækisins í Austurríki þar sem framleiðslan hefur nú þegar fengið góðar viðtökur, enda hóf MYR design starfsemi sína þar þegar hönnuðurinn og eigandinn bjó þar um tíma. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 500 þúsund.
Nr. 2. Framleiðsla á omega 3 fitusýrum á Reykjanesi.
Verkefnið snýr að þróun og síðar uppsetningu á framleiðslueiningu á Reykjanesi í samstarfi við erlenda samstarfsaðila Matorku. Markaður fyrir omega 3 fitusýrur er griðarlega stór og fer vaxandi. Reykjanesið er ákjósanlegt fyrir framleiðslu af þessum toga þar sem hér er næg orka. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500 þúsund.
Nr. 3. Keflavík Music Festival.
Hugmyndin með verkefninu er að setja á laggirnar tónlistarhátíð á Ásbrú. Hátíðin verður markaðssett erlendis jafnt og á Íslandi. Styrkurinn er veittur til áframhaldandi undirbúnings og þróunar á klasasamstarfi og viðskiptahugmyndinni. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500 þúsund.
Nr. 4. Endurnýting fisksalts í hálkuvarnarsalt.
Verkefnið lýtur að rannsóknum og tilraunum á að hreinsa og endurnýta fisksalt með það að markmiði að nýta það sem hálkuvarnarsalt. Með því er hægt að lækka kostnað sveitarfélaga sem hlýst af innfluttu salti til hálkuvarna og spara með verkefninu dýrmætan gjaldeyri. Verkefnið lýtur styrk að fjárhæð kr. 800 þúsund.
Nr. 5. Reykjanes Culture & Design Tours.
Verkefnið lýtur að því að bjóða erlendum ferðamönnum upp á menningar- og hönnunartengdar verslunarferðir fyrir einstaklinga og hópa og kynna fyrir þeim íslenska menningu, hönnun, handverk og listir. Þróað verður verkefnið Reykjanes Design and Cultural Tours og áhersla lögð á að ná til „Stop-over“ ferðamanna, eða þeirra sem dvelja á landinu einn sólahring eða skemur. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 800 þúsund.
Nr. 6. Aircraft Asset Management
Verkefnið lýtur að sérhæfingu á heildarlausn í eigna- og verðmætastýringu fyrir flugvélaeigendur með flugvélar sem lokið hafa líftíma sínum. Áætanir gera ráð fyrir að unnt sé að endurnýta 85-95% af hverri flugvél. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Nr. 7. Hagræn förgun á sorpbrennsluösku
Verkefninu er ætlað að skoða og greina nýja valkosti við förgunarlausnir óbrennanlegra afurða sorpbrennslustöðvar. Verkefnið fékk styrk úr Vaxtarsamningi á sl. ári og er hér um framhald að ræða. Með þessu verkefni hefur náðst að auka þekkingargrunn og kortleggja eiginleika öskuefna að verulegu marki auk þess að þróa hugmyndir að tæknilausnum. Í þessum hluta verkefnisins er ætlunin að útfæra tæknilausnir og prófa þær við raunsannar aðstæður. Verkefnið hlytur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Nr. 8. Research on a variety of seaweed species and their extracts obtained from Suðurnes, for use in certified organic health and skin care products.
Verkefnið lýtur að nýtingu og vinnslu á lífrænt vottuðum þörungum til notkunar í heilsu- og húsvörum. Verkefnið mun efla þróun og nýsköpun úr stórþörungum og leggja grunn að aukinni nýtingu stórþörunga á Reykjanesi. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Nr. 9. Sjóstangaveiði á Suðurnesjum.
Verkefni þetta lýtur að vetrarferðamennsku. Í byrjun er ætlunin að gera út einn bát á Suðurnesjum, frá Sandgerði, Grindavík eða Reykjanesbæ eftir því hvaða höfn hentar best hverju sinni. Varan mun til að byrja með byggja á sjóstangaveiði, veitingasölu, vinnslu á afla og pökkun auk annarrar þjónustu við viðskiptavinina. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Nr. 10. Umsókn um styrk til uppbyggingar á Auðlindagarði sem vinnur úr afurðum sem tengjast jarðvarma.
Verkefnið lýtur að styrkumsókn til sjöundu rammaáætlunar Evrópusambandsins. Þar verður sótt um styrk til þess að koma á fót skilgreindum Auðlindagarði, sem yrði öndvegissetur í fjölnýtingu afurða úr jarðvarma. Ef af styrkveitingunni verður frá Evrópusambandinu er hér um að ræða fjármuni sem myndu gera fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum kleift að þróa nýjar vörur, þjónustu og markaði með tilheyrandi atvinnu- og verðmætasköpun á Suðurnesjum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1,5 milljón.
Nr. 11. Hagræn nýting fiskislógs á Suðurnesjum.
Víða er förgun á fiskslógi orðið umhverfislegt vandamál, fyrirtæki standa frammi fyrir untalsverðum flutnings- og förgunarkostnaði. Því er þörf á hentugri lausn á nýtingu slógs til mjöls og lýsisgerðar. Verkefnið lýtur að rannsóknum, greiningu og frumhönnun á slógnýtingarverksmiðju. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 milljónir.
Nr. 12. Kynningarátak á vörum í Whole Foods Marked.
Verkefnið lýtur að markaðsátaki í Bandaríkjunum þar sem fyrirtækið Hafnot ehf hefur komið vörum sínum Söl og Hrossaþara í verslanir Whole Foods Marked verslunarkeðjunnar í Bandaríkjunum. Varan er nú í samkeppni við vöru frá Asíu sem er talsvert ódýrari en gæði íslensku vörunnar þykja mun betri. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.
Nr. 13. Flugvirkjabúðir.
Verkefnið lýtur að því að byggja upp alþjóðlegt nám í flugvirkjun við flugakademíu Keilis. Verkefnið hefur verið styrkt af Vaxtarsamningi og er hér sótt um öðru sinni til áframhaldandi þróunar starfseminnar og markaðsvinnu, með það að markmiði að hefja nám í flugvirkjun hjá Keili um mitt ár 2012. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.
Nr. 14. Flugvélamálun
Verkefnið lýtur að málun flugvéla stórra sem smárra. Sambærileg þjónusta er ekki til staðar á Íslandi og hafa því íslensk flugfélög sótt þjónustuna til annarra landa. Viðskiptahugmyndin er sú að sækja á erlendan markað ásamt því að skapa möguleika fyrir íslensk flugfélög að fá þjónustuna hér á landi og spara með því tíma og gjaldeyri. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.
Nr. 15. Grjótkrabbi – rannsóknir og vinnsla á Suðurnesjum.
Verkefnið gengur út á veiðar, vinnslu og markaðssetningu á grjótkrabba sem er ný tegund hér við land en er þekkt nytjategund við NA strönd Ameríku. Um framhaldsumsókn er að ræða. Ætlunin er að halda áfram rannsóknum á krabbanum, auk vöruþróunar og markaðssetningar. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2,5 milljónir.
Nr. 16. Eldfjallagarður á Reykjanesi
Verkefnið lýtur að því að koma jarðminjum á framfæri, vernda þær og stuðla að sjálfbærri efnahagslegri þróun með því meðal annars að þróa jarðferðamennsku og eldjallagarð. Verkefnið byggir á einstakri jaðfræði í landi Grindavíkur og á Reykjanesinu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 3 milljónir.
Mynd/EJS: Fulltrúar þeirra verkefna sem hlutu styrk í gær.