150 nýjar íbúðir á háskólasvæði Keilis á Vallarheiði
-íbúafjöldi á gamla varnarsvæðinu fer yfir eitt þúsund.
Keilir, miðstöð vísinda fræða og atvinnulífs, hefur fengið allt að 150 íbúðir til úthlutunar fyrir námsmenn á háskólasvæðinu á Vallarheiði í Reykjanesbæ. Þessar íbúðir bætast við þær 350 sem þegar er búið í á svæðinu. Áætlað er að taka íbúðirnar í notkun í desember og janúar næstkomandi. Heildarfjöldi íbúa á háskólasvæðinu mun þá vaxa úr tæplega 800 í 1100-1200 manns.
Fjöldi iðnaðarmanna vinnur nú á vegum ÍAV þjónustu við endurbætur íbúðanna en jafnframt er unnið að stækkun á leikskóla Hjallastefnunnar þannig að hægt verði að fjölga þar börnum um áramót. Þegar stunda rúmlega 70 börn nám í leikskólanum og tæplega 50 í grunnskólanum.
Samkaup opnuðu nýlega verslun og á næstunni mun fullkomin íþróttamiðstöð taka til starfa en um þá starfssemi hafa Keilir, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar og Reykjanesbær stofnað sérstakt hlutafélag, Íþróttavelli ehf. Þá er unnið að því að opna kaffi- og veitingahús til að þjóna ört vaxandi samfélagi á Vallarheiði. Uppbygging þess er samstarfsverkefni Keilis, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Háskólavalla ehf. og Reykjanesbæjar.
Íbúðirnar eru bæði einstaklings- og fjölskylduíbúðir, 55-160 fermetrar að stærð og vel búnar tækjum. Þær eru ætlaðar nemum sem stunda nám við háskóla á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar en innifalið í hagstæðu leiguverði er rafmagn, hiti, net og express strætó sem tengir Keilissvæðið við háskóla í Reykjavík.
Upplýsingar um leiguverð er að finna á www.keilir.net.
Samkvæmt fréttum síðustu daga er mikil þensla á leigumarkaði en um 1100 manns bíða eftir húsnæði á stúdentagörðum í Reykjavík. Tæplega 100 manns eru þegar á biðlista hjá Keili eftir húsnæði.