Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

150 milljónum verði veitt til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum
Fimmtudagur 17. september 2009 kl. 14:53

150 milljónum verði veitt til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum


Eignarhaldsfélag Suðurnesja mun verja 150 milljónum króna til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum, samkvæmt tillögu fráfarandi stjórnar félagsins, sem lögð verður fram á aðalfundi þess í næstu viku.

Í tillögunni segir að stjórn félagsins leggi til við hluthafafund að félagið ráðstafi allt að 150 milljónum af lausafé félagsins til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum, með veitingu lána, hlutafjárkaupum eða styrkjum, samkvæmt nánari reglum sem stjórn félagsins setur sér

Ekki er reiknað með öðru en hluthafafundur samþykki tillöguna og ný stjórn sem kjörin verður á aðalfundinum geti strax í framhaldi auglýst eftir umsóknum til styrkingar atvinnulífinu á svæðinu og verkefnum sem skapað geta ný störf, segir Böðvar Jónsson formaður félagsins, í tilkynningu sem hann sendi út í dag fyrir hönd félagsins.

Eignarhaldsfélag Suðurnesja er í 70% eigu ríkisins og Byggðastofnunar 20% í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og 10% í eigu Lífeyrissjóðsins Festu og annarra fagfjárfesta.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024